Forsíða
LeiðtogaAuður
LeiðtogaAuður hefur þann tilgang að efla tengsl kvenna í leiðtoga og stjórnunarstöfum hjá íslenskum fyrirtækjum.
Markmið félagsins er að konur í forystusveit íslensks viðskiptalífs kynnist hver annarri og geti nýtt sér tengsl, stuðning, aðstoð og önnur tækifæri sem félagsskapurinn býður upp á, auk þess að vera þeim konum sem á eftir koma hvatning, fyrirmynd og stuðningur.
LeiðtogaAuður einbeitir sér að málefnum viðskiptalífsins og því umhverfi sem það starfar í á hverjum tíma.
LeiðtogaAuður varð til í tengslum við verkefnið ,,AUÐUR í krafti kvenna” sem stóð yfir á árunum 2000-2003.
Félagskonur eru nú um 80, lang flestar eru þær í stjórnendastöðum, oft framkvæmdastjórar, hjá stórum og meðalstórum fyrirtækjum í íslensku atvinnulífi.
1.4.2010
Vorfundur 8. apríl 2010
Nauthóll – veitingastaður Nauthólsvík
Þema: TRAUST
Dagskrá:
12:30 - 13:00 Mæting og léttar veitingar
13:00 - 15:00 Fyrri hluti: Hvernig byggjum við upp þjóðfélag sem einkennist að trausti og hærri siðferðiskennd?
Fyrirlesari 1: Guðfinna Bjarnadóttir, stjórnunarráðgjafi og fv. rektor
Fyrirlesari 2: Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
Fyrirspurnir/umræða
15:00 – 15:15 Kaffihlé
15:15 - 17:00 Seinni hluti: Hvað get ég gert til að byggja upp traust sem einstaklingur og stjórnandi?
Fyrirlesari 1: Jóna Hrönn Bolladóttir, prestur
Fyrirlesari 2: Stefán Einar Stefánsson, siðfræðingur
Fyrirspurnir/umræður
17:00 – 18:00 Útivist og verklegar æfingar(léttar) undir stjórn Practical
18:00 Kokteill
18:30 Kvöldverður og skemmtiatriði
Kostnaðurinn er 5.000 kr. og við munum senda ykkur calendarbókun núna rétt á eftir fyrir morgundaginn. Vonandi sjá sér fleiri færi á að mæta þannig að við fáum mikla og góða umræðu um málefni fundarins. Þær sem nú þegar eru bókaðar á vinnudaginn þurfa einnig að skrá sig til að við sjáum að skilaboðin hafi komist til allra þannig að enginn keyri upp í Borgafjörð í fyrramálið að óþörfu.
Vinnudagar hjá LeiðtogaAuði hafa alltaf verið ótrúlega skemmtilegir og fræðandi og ekki má gleyma hvað þetta er frábær leið til að kynnast betur innbyrðis og styrkja tengslanet LeiðtogaAuðar sem án efa er eitt af því mikilvægasta sem félagsskapurinn hefur upp á að bjóða.
f.h. stjórnar
Jóhanna Waagfjörd
26.4.2009
Aðalfundur LeiðtogaAuða verður haldinn þriðjudaginn 19. maí n.k. Fundurinn verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík og hefst kl. 18:00. Eftir aðalfundastörf verður ljúfengur kvöldverður. Nánari upplýsingar þegar nær dregur aðalfundi.
12.3.2009
Fimmtudaginn 5. mars, afhentu nokkrar stjórnarkonur LeiðtogaAuðar Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, kveðjur hópsins, hvatningu og gjöf í nafni LeiðtogaAuðar.
- Hvatningin var í formi 10 „varða“, sem eru afrakstur vinnu félagskvenna einn eftirmiðdag í Bláa Lóninu í janúar sl. Vörðurnar eru svör vinnuhópa um hvaða forgangsmál LeiðtogaAuður telur vera mest afgerandi fyrir nýja ríkisstjórn að koma í farveg sem allra fyrst.
- Kveðjan var í formi yfirlýsingar um að konurnar í LeiðtogaAuði gæfu kost á sér í mikilvæg verkefni framundan m.a. í formi nefndar- og stjórnarsetu, ráðgjöf og rýni, vinnuhópum ofl. og bæru ábyrgð á áframhaldandi farsæld þjóðarinnar.
Það var stoltur hópur LeiðtogaAuða sem átti góða stund með forsætisráðherra og komum við hér á framfæri hennar kveðjum og þakklæti.
20.2.2009
Í lok janúar fundaði stór hópur LeiðtogaAuða í einstakri fundaraðstöðu í Bláa lóninu þar sem áherslan var á efnahagslífið. Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum flutti frábært erindi um stöðuna í efnahagsmálum og í framhaldi af því voru Jóhanna Waagfjörð framkvæmdastjóri fjármála hjá Högum, Hrund Rudólfsdóttir framkvæmdastjóri rekstrar og fjárfestingamála hjá Moderna og Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka með innlegg um hvernig er að standa í eldlínunni. Miklar umræður voru í kjölfarið. Framtíð Íslands var í brennidepli á síðari hluta fundarins. Unnið var með framtíðarsýn og gildi í vinnuhópum og tillögur gerðar um mikilvægustu aðgerðir. Niðurstöður hafa verið teknar saman og verða þær afhentar Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra.