Guðrún Högnadóttir

Guðrún Högnadóttir

Framkvæmdastjóri Opna háskólans

Háskólinn í Reykjavík Opni háskólinn

Guðrún er framkvæmdastjóri Opna háskólans sem veitir árlega rúmlega 7000 nemendum aðgang að sex þekkingargáttum Háskólans í Reykjavík. Guðrún starfaði við stjórnunarráðgjöf 1998 til 2005 einkum á sviði stefnumótunar, skipulags- og mannauðsmála og gæðastjórnunar. Hún var einn meðeiganda IMG Ráðgjafar áður Deloitte & Touche Ráðgjöf (nú Capacent). Hún var fræðslustjóri Ríkisspítala og forstöðumaður gæða- og þróunarskorar Landspítalans á árunum 1991 til 1997.

2008 Framkvæmdastjóri Opni háskólinn
2005 Þróunarstjóri Stjórnendaskóla Háskólans í Reykjavík
2004 Meðeigandi (partner) IMG Ráðgjöf
2002 Meðeigandi (partner) IMG Deloitte
2001 Meðeigandi (partner) Deloitte & Touche Ráðgjöf
2000 Verkefnisstjóri (senior consultant) VSÓ Deloitte & Touche Ráðgjöf
1999 Stjórnunarráðgjafi hjá VSÓ Ráðgjöf
1994 Forstöðumaður gæða- og þróunarskorar Ríkisspítala
1991 Fræðslustjóri Ríkisspítala
1990 Administrative Intern Department of Planning and Program Development UNC Hospitals

Guðrún Högnadóttir er heilbrigðisrekstrarhagfræðingur að mennt en hún lauk BSPH og MHA prófgráðum frá University of North Carolina í Chapel Hill. Guðrún lauk jafnframt Associate Certified Coach prófréttindum frá CCU árið 2004. Hún lauk AMP námi frá Háskólanum í Reykjavík og IESE árið 2008. Jafnframt er hún Master certified trainer í 7 Habits of Highly Effective People, 7 Habits of Highly Effective Managers, xQ The Execution Quotient, 4 Disciplines of Execution, Coaching Clinic ofl.

Nefndir
2008 - Nefnd Félags Viðskipta og hagfræðinga um viðskiptafræðing ársins
2007 - Vinnuhópur á vegum forsætisráðuneytisins um ímynd Íslands
2005 - Nefnd Félags Viðskipta og hagfræðinga um viðskiptafræðing ársins
1998 – Samstarfsráð heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins um gæðamál.
1997 Nefnd iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis um framleiðniaukningu.
1997 Úthlutunarnefnd: vísinda- og þróunarsjóður GSFÍ.
1996 Vinnuhópur Reykjavíkurborgar um stefnumörkun í ferðaþjónustu.
1996 Ráðgjafanefnd menntamálaráðherra um gæði í skólastarfi.
1995 Nefnd fjármálaráðuneytis um umbætur í opinberum rekstri.
1992 Verkefnisstjórn: þjóðarsókn í gæðamálum.
1991– Ýmsar nefndir á vegum Ríkisspítala s,.s. stefnumörkun spítalans, upplýsingatæknimál, hönnun og umsjón með heimasíðu og innra neti spítalans og gerð kynningarefnis.

Stjórnir
2008 Borgun - stjórnarmaður
2008 Vistor - stjórnarmaður
2008 LeiðtogaAuður- stjórnarmaður
2008 Klak- varamaður í stjórn
2007 Frankin Covey Nordic Approach Leadership - stjórnarmaður
2007 Félag markþjálfunar á Íslandi - formaður stjórnar
2006 Ljósið - endurhæfingarmiðstöð, formaður stjórnar
2006 Stjórnarformaður The Icelandic Coaching Association
2005 Varaformaður stjórnar Ljósið - endurhæfing
2001- 2003 Formaður stjórnar íslensku gæðaverðlaunanna
2001 Varamaður í stjórn Byggingarframkvæmda ehf.
2001 - LeiðtogaAuður
1999 - 2003 Stjórn íslensku gæðaverðlaunanna
1995 – 1998 Formaður Gæðastjórnunarfélags Íslands.
1998 Matsmaður Íslensku gæðaverðlaunanna.
1993 – 1995 Varaformaður Gæðastjórnunarfélags Íslands.
1992 – 1998 Stjórn Gæðastjórnunarfélags Íslands.
1992 – 1994 Stofnandi og formaður heilbrigðishóps GSFÍ.
1994 – 1995 Stofnmeðlimur og varaformaður heilbrigðisdeildar European Organization for Quality.
1991 – 1994 Stjórn European Quality Assurance Network.
1985 – 1986 Þátttakandi í Young Europe Africa Expedition

Kajak, skíði, útivist, tennis.

Guðrún leiðir samstarf Háskólans í Reykjavík við FranklinCovey, sem er eitt stærsta fyrirtæki heims á sviði leiðtogaþjálfunar og frammistöðu.