Kristín Pétursdóttir
Forstjóri
Auður Capital
Kristín var aðstoðarforstjóri hjá Kaupþingi Singer & Friedlander í London til ársloka 2006. Kristín hafði yfirumsjón með samþættingu Singer & Friedlander við Kaupþing banka. Það verkefni fólst m.a. í því að umbreyta gamaldags og rótgrónum breskum banka í nútímalegt fjármálafyrirtæki sem hefur áunnið sér sess í Bretlandi sem banki frumkvöðla. Kristín starfaði hjá Kaupþingi banka frá árinu 1997 og var lykilmanneskja í uppbyggingu bankans frá því að vera lítið verðbréfafyrirtæki í það að verða stór alþjóðlegur banki með starfsemi í 9 löndum. Á árunum 1999-2005 var Kristín framkvæmdastjóri Fjárstýringar og sá alfarið um fjármögnun bankans. Áður en Kristín hóf störf hjá Kaupþingi vann hún hjá Statoil í Noregi, hjá Skeljungi og hjá Íslandsbanka.
Kristín er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og er með mastersgráðu í alþjóðaviðskiptum frá Handelshöyskolen í Bergen í Noregi.
Kristín sat í stjórn Kaupþings Singer & Friedlander og er stjórnarmaður í Vistor.