Þóranna Jónsdóttir
Framkvæmdastjóri samskipta og viðskiptaþróunar
Auður Capital hf.
Þóranna starfaði áður sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Veritas Capital sem er móðurfélag Vistor hf, Distica hf og Artasan ehf, jafnframt því að gegna starfi framkvæmdastjóra Artasan. Á árunum 1999-2005 starfaði hún sem aðjunkt og síðar lektor og forstöðumaður BS náms við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, á því tímabili sinnti hún einnig ráðgjöf og stjórnendafræðslu hjá fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum á vegum Stjórnendaskóla HR. Helstu kennslu og rannsóknarsvið voru markaðsfræði, þjónstustjórnun, rekstur smáfyrirtækja og breytingastjórnun. Á árum áður starfaði Þóranna sem framkvæmdastjóri Lyf & heilsu og sem yfirmaður gæða- og markaðsmála hjá Íbúðalánnasjóði.
MSc í lyfjafræði frá Háskóla Íslands, MBA frá IESE í Barcelona
Stjórnarformaður Artasan ehf. frá árinu 2007, stjórnarformaður Ritara ehf frá árinu 2007. Í stjórn Lyfju hf. 2004-2006, í stjórn Dreifingarmiðstöðvarinnar hf. 2002-2004. Í skólanefnd Menntaskólans við Hamrahlíð 2001-2005.
Stjórnir fyrirtækja og hlutverk þeirra. Útivist, heyfing og góð vín.