LeiðtogaAuður
LeiðtogaAuður hefur það hlutverk að auka hlut og áhrif kvenna í viðskiptalífinu og efla tengsl þeirra.
Markmið félagsins er að konur í forystusveit íslensks viðskiptalífs kynnist hver annarri og geti nýtt sér tengsl, stuðning, aðstoð og önnur tækifæri sem félagsskapurinn býður upp á, auk þess að vera þeim konum sem á eftir koma hvatning, fyrirmynd og stuðningur.
LeiðtogaAuður einbeitir sér að málefnum viðskiptalífsins og því umhverfi sem það starfar í á hverjum tíma.
LeiðtogaAuður varð til í tengslum við verkefnið ,,AUÐUR í krafti kvenna“ sem stóð yfir á árunum 2000-2003.
Félagskonur eru nú um 80, lang flestar eru í stjórnendastöðum, oft framkvæmdastjórar, hjá stórum og meðalstórum fyrirtækjum í íslensku atvinnulífi.