Aðalfundur

Aðalfundur LeiðtogaAuðar var haldinn í Iðusölum í Reykjavík þann 4. júní 2010 og mættu 24 konur á fundinn.

Jóhanna Waagfjörð formaður félagsins flutti skýrslu stjórnar þar sem hún fór yfir helstu þætti í starfsemi. Dagskrá síðasta vetrar var með hefðbundnum hætti, mánaðarlegir hádegisverðarfundir á Vox, fyrirtækjaheimsóknir, árleg ráðstefna fyrir félagskonur var haldin á Nauthól þar sem þemað var TRAUST og mættu 24 konur á ráðstefnuna. Auk þess tók LeiðtogaAuður þátt í undirbúningi hvatningarfundar sem haldinn var á Hótel Nordica í febrúar 2010. Fundarefnið var “Virkjum karla og konur” þar sem lögð var áhersla á mikilvægi þess að auka hlut kvenna í íslensku atvinnulífi. Þáttaka í ráðstefnunni var mjög góð og um 300 aðilar, bæði konur og karlar, mættu til að styðja málefnið.

Á aðalfundinum gengu úr stjórn þær Kristín Pétursdóttir og Jóhanna Waagfjörð og var þeim þakkað fyrir gott starf í þágu LeiðtogaAuðar. Í þeirra stað taka sæti í stjórn LeiðtogaAuðar þær Liv Bergþórsdóttir og Sigrún Ragna Ólafsdóttir.

Gjaldkeri félagsins, Hildur Árnadóttir, fór yfir rekstur og efnahag síðastliðið starfsár. Stjórn ákvað að vel athuguðu máli að innheimta ekki félagsgjöld á síðasta starfsári enda stjóðstaða góð og ekki talin þörf á að safna digrum sjóðum. Ný stjórn mun í haust ákveða með innheimtu félagsgjalda á næsta starfsári en miðað við umræðu á aðalfundi má gera ráð fyrir að félagsgjöld verði innheimt.

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður var gestur aðalfundar og flutti hún mjög fróðlegt erindi um gildi hönnunar og voru líflegar umræður að því loknu.

Starfsárið 2010 – 2011 er stjórn LeiðtogaAuðar skipuð eftirfarandi aðilum:

Brynja Guðmundsdóttir, formaður

Hildur Árnadóttir, gjaldkeri

Hrund Rudolfsdóttir

Guðrún Högnadóttir

Liv Bergþórsdóttir

Sigrún Ragna Ólafsdóttir.