Fyrir þær sem eru að velta fyrir sér að koma á stofn eigin rekstri, þá auglýsir Félagsmálaráðherra aukaúthlutun á Styrkjum til atvinnumála kvenna árið 2007. Styrkirnir eru ætlaðir konum sem eru með góða viðskiptahugmynd og stefna á að koma á fót sjálfstæðum atvinnurekstri. Þessi aukaúthlutn hefur það meginmarkmið að styðja við viðskiptahugmyndir sem fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni. Má sjá nánar á
http://http//www.vinnumalastofnun.is/atvinnumal-kvenna/Á sömu síðu má lesa um Lánatryggingarsjóður kvenna, sem er samstarfsverkefni félagsmálaráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og Reykjavíkurborgar. Sjóðurinn er í samstarfi við Landsbanka Íslands og saman veita þeir tryggingar fyrir lánum.
Meginmarkmið Lánatryggingasjóðs kvenna er að styðja konur til nýsköpunar í atvinnulífi með því að veita ábyrgðir á allt að helming lána sem þær taka hjá Landsbanka Íslands til að fjármagna tiltekið verkefni. Ábyrgðin er veitt á grundvelli mats á arðsemi viðskiptahugmyndarinnar.