Nýtt ár

Gleðilegt nýtt ár!  

Starfsemin á vormánuðum verður með hefðbundnu sniði, en það verða viðbætur við þegar auglýsta dagskrá.   Við munum senda upplýsingar innan tíðar um viðbæturnar.   Meðal þess verður hádegisverðarfundur með viðskiptaráðherra sem haldinn verður með FKA, Félagi kvenna í atvinnurekstri.  Við minnum á reglulegan hádegisverð á Vox annan þriðjudag í hverjum mánuði, næst þriðjudaginn 8. janúar og á fyrirtækjaheimsóknina til Bláa lónsins miðvikudaginn 30. janúar.