Hádegisverðarfundur með viðskiptaráðherra
Hádegisverðarfundur verður á Nordica föstudaginn 25. janúar n.k. Gestur fundarins verður Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra. Fundurinn hefst kl.12:00 og verður lokið kl.13:30.
Efni fundarins: Aðgerðir til að fjölga konum í stjórnum og öðrum valda- og áhrifastöðum.
Fundurinn er haldinn í samvinnu við FKA, Félag kvenna í atvinnurekstri. Nánari upplýsingar um fundinn og skráningu hafa verið sendar til félagskvenna í tölvupósti.