Heimsókn í Bláa lónið

Ákveðið hefur verið að fresta heimsókninni í Bláa lónið til 13. febrúar n.k.
Ástæða þess er að of stutt var á milli heimsóknarinnar og fundarins með viðskiptaráðherra.

Dagskráin þann 13.  febrúar verður svona:

16.30 Mæting á stæðið hjá Sjóvá þar sem rúta bíður
17.10 Bláa lónið – kynning og léttar veitingar
18.30 Dýft sér í vatnið
20.00 Rútan fer í bæinn

Þær sem vilja vera lengur og borða, verða því að vera á eigin bíl, eins þær tímabundnu sem ekki vilja fara í vatnið.
Þær sem nýta sér rútuna þurfa að greiða 500 kr við brottför.
 
Sendur verður út póstur í byrjun febrúar til að minna á og vita fjölda í rútu og í heimsóknina.