Nýr fundartími með viðskiptaráðherra

Nýr fundur með viðskiptaráðherra verður fimmtudaginn 31. janúar kl. 12:00 - 13:30 á Nordica.

Eins og fram kom í tölvupósti í morgun til þeirra LeiðtogaAuða sem höfðu skráð sig á fundinn í hádeginu í dag varð að fresta honum, þar sem viðskiptaráðherra var veðurtepptur á Selfossi.

Til upprifjunar þá er fundurinn haldinn í samvinnu við FKA og efni fundarins er:
Aðgerðir til að fjölga konum í stjórnum og öðrum valda- og áhrifastöðum.

Á matseðlinum verður kjúklingasalat og einhver góður eftirréttur með kaffi. Verð kr. 2.600.