Við segjum JÁ

Í dag, fimmtudaginn 31. janúar 2008, birtist heilsíðuauglýsing í 3 dagblöðum, Fréttablaðinu, Morgunblaðinu og Viðskiptablaðinu með nöfnum rúmlega 100 félagskvenna úr LeiðtogaAuðum og FKA sem lýsa því yfir að þær muni segja JÁ þegar til þeirra verður leitað um að taka sæti í stjórnum stærstu fyrirtækja landsins.

Hugmyndin að þessu framtaki vaknaði í spjalli hjá stjórnarkonum félaganna um hvernig hægt væri að fjölga konum í stjórnum fyrirtækja, og vekja athygli á því að hlutfallið er óásættanlegt í dag. Tölvupóstur var sendur á félagskonur og innan tveggja sólarhringa var listinn kominn.

Auk birtingu auglýsingarinnar hafa verið send út bréf til æðstu stjórnenda 150 stærstu fyrirtækjanna ásamt sérprentun af auglýsingunni.

Með þessu viljum við leggja okkar af mörkum við að beita jákvæðum þrýstingi til að fjölga konum í stjórnum og þannig auka áhrif og völd kvenna í íslensku viðskiptalífi.