Í dag var haldinn hádegisverðarfundur með Viðskiptaráðherra, Björgvini G. Sigurðssyni á Hilton hótelinu, þar sem umræðuefnið var hvernig fjölga ætti konum í stjórnunar- og áhrifastöðum í atvinnulífinu.
Fundurinn var samstarfsverkefni LeiðtogaAuðar og FKA - Félags kvenna í atvinnurekstri.
Á fundinum fór Tanya Zharov, fundarstjóri, yfir
gögn sem unnin voru fyrir fundinn og sýndu að hlutur kvenna í stjórnum fyrirtækja og lífeyrissjóða er dapurlegur. Ráðherra, fór yfir sínar hugmyndir um hvað sé til ráða, erindi hans má lesa
hérna, og í lokin voru opnar umræður um málefnið.
Helstu atriði sem þar komu fram voru að þolinmæðin væri á þrotum, lengi væri búið að bíða eftir að hlutföllin yrðu konum hagstæðari, en lítið þróast í rétta átt. Það voru skiptar skoðanir á kynjakvóta á fyrirtæki, en flestar voru sammála um að skoða þyrfti kvóta sem raunhæfan kost ef aðrar aðferðir duga ekki til að auka hlut kvenna verulega innan 2-3 ára. Óskað var stíft eftir beinum aðgerðum, bæði frá konum, atvinnulífinu og að hið opinbera gangi á undan með góðu fordæmi. Það er mikilvægt að konur láti sinn vilja í ljós með að beina sínum viðskipum til þeirra fyrirtækja sem láta sig jafnrétti varða, bæði neytendafyrirtæki og t.d. lífeyrissjóði.
Fundurinn var vel sóttur og ljóst af mikilli umræðu og þeim þunga sem þarna kom fram að það er mikill vilji og kraftur hjá konum til að breyta þessum hlutföllum til hins betra