7 venjur til árangurs
Þann 2. til 4. apríl n.k. er félagskonum boðið að sækja sérstakan viðburð sem er sérsniðin að þátttakendum í LeiðtogaAuði og FKA á eina áhrifamestu þekkingarsmiðju heims: 7 venjur til árangurs (The 7 Habits of Highly Effective People). Um er að ræða ítarlega og einstaklingsmiðaða nálgun við að laða fram það besta og rækta persónulega forystu og árangur. Innifalin eru mjög vönduð kennslugögn, innbundin vinnubók þátttakenda, hljóðbækur og myndbönd fyrir hvern þátttakanda, 360° rafrænt frammistöðumat, persónulegar frammistöðuskýrslur, bók Stephen Covey “The 7 Habits of Highly Effective People”, Plan Plus® hugbúnaðurinn, ýmis minnisspjöld, 7 vikna samningur, persónuleg heimasíða þátttakenda með ítarefni og eftirfylgni o.fl. Nánari upplýsingar hér: www.franklincovey.is