Fyrirtækjaheimsókn í Bláa lónið

LeiðtogaAuður ætla að heimsækja Bláa lónið fimmtudaginn 14. febrúar n.k. Við hvetjum ykkur til að taka með gest.
Dagskráin er eftirfarandi:
16.30 Mæting á stæðið hjá Sjóvá, Kringlunni 5., þar sem rútan bíður
17.10 Bláa lónið – kynning og léttar veitingar
18.30 Dýft sér í vatnið
20.00 Rútan fer í bæinn
Þær sem vilja vera lengur eða skemur, verða því að vera á eigin bíl.
Stefnt er að því að fá sér að borða í bænum á eftir á Fiskmarkaðnum í Aðalstræti.
Þær sem nýta sér rútuna þurfa að greiða 500 kr.  við brottför
Vinsamlega skráið ykkur sem fyrst á karolinank@ru.is í síðasta lagi fyrir þriðjudaginn 12. febrúar n.k. og takið fram
a. Hvort þið mætið
b. Hvort þið ætlið í rútunni
c. Hvort þið ætlið út að borða
d. Hvort þið séuð með gest