Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins
LeiðtogaAuður og FKA hafa verið tilnefnd til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins fyrir auglýsinguna ,,Við segjum JÁ" sem birtist í dagblöðum 31. janúar s.l.
Í Fréttablaðinu þann 22. febrúar s.l. kom fram að ,, Í mati dómnefndar segir að auglýsingin hafi hrist upp í karlasamfélaginu í viðskiptalíinu og að ,,þetta sé einn liður í hugarfarsbreytingu til að jafna hlut kynjanna í viðskiptalífinu"".
LeiðtogaAuðar er að sjálfsögðu mjög ánægðar með tilnefninguna. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhendir verðlaunin í dag þann 26. febrúar í Þjóðmenningarhúsinu.