Hildur skiptir um starf inn Bakkavarar Group
Hildur Árnadóttir hjá Bakkavör Group hefur skipt um starfssvið innan fyrirtækisins. Hún hættir sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs og hefur tekið að sér að sinna sérverkefnum fyrir Ágúst Guðmundsson, forstjóra Bakkavör Group, og Lýð Guðmundsson, stjórnarformann félagsins, ásamt því sem hún mun sitja í stjórnum fyrirtækja þeim tengdum.