Aðalfundur LeiðtogaAuða

Stefnumótunar- og aðalfundurinn fór fram í Café Flóru 8. maí.  Hann var ágætlega sóttur og voru líflegar umræður um stefnu félagsins og  aukna samvinnu við FKA.  Frekar umræða um stefnu félagsins verður tekin upp á hausráðstefnunni sem fyrirhugað er að verði 9. - 10. október n.k.
Fundargerð og skýrsla stjórnar hefur verið send félagskonum í tölvupósti.  Nýjar samþykktir eru að finna undir stofnskjali hér á síðunni.  Stjórn félagsins næsta starfsár skipa Jóhanna Waagfjörð, formaður, Guðrún Högnadóttir, Hrund Rudólfsdóttir, Kristín Pétursdóttir, Vilborg Lofts og Þóranna Jónsdóttir.

Formlegt félagsstarf liggur niður í sumar.  Fyrsti hádegisfundurinn á Vox verður þriðjudaginn 9. september.