Fyrstu fréttir af haust starfinu
Þriðjudaginn 9. september var fyrsti hádegisverður á Vox þetta starfsárið. Þar mætti góður hópur félagskvenna hressar eftir sumarið, þar á meðal tvær nýjar félagskonur þær Elín Jónsdóttir í Arev og Liv Bergþórsdóttir í Nova. LeiðtogaAuðar eiga frátekið borð á Vox annan þriðjudag í hverjum mánuði.
Fimmtudaginn 9. október verður haustráðstefna félagsins. Að þessu sinni verður hún haldin á Búðum á Snæfellsnesi. Nánari upplýsingar um dagskrá og fleira verður sent í tölvupósti í næstu viku.