Gleðilegt nýtt ár
Stjórn LeiðtogaAuða óskar félögum farsældar á nýju ári og þakkar fyrir ánægjulega samveru á árinu sem var að líða.
Fimm öflugar konur hafa bæst í hóp LeiðtogaAuða. Það eru Auður Guðmundsdóttir hjá VÍS, Elín Jónsdóttir hjá Arev, Liv Bergþórsdóttir hjá Nova, Margit Robertet hjá Auði Capital og Sigríður Margrét Oddsdóttir hjá Skjá einum. Stjórnin býður þær velkomnar og hlakkar til samstarfsins.
Dagskráin næstu mánuði hefur verið ákveðin. Haldið verður áfram að hittast á VOX í hádeginu annan þriðjudag í hverjum mánuði. Fyrirtækjaheimsókn verður 5. eða 12. mars. Tilkynnt verður hvert verður farið þegar nær dregur. Hin árlega ráðstefna LeiðtogaAuða sem átti að vera í byrjun október en var frestað verður 29. janúar í Blá lóninu. Félagar fá senda dagskránna í tölvupósti. Aðalfundur verður 29. apríl.
Hafinn er undirbúningur með FKA að átaki til að fjölga konum í stjórnum og áhrifastöðum í átt við það sem gert var á síðasta ári.
Auk hádegisverðafundanna á haustmisserinu voru tvær mjög vel heppnaðar fyrirtækjaheimsóknir í nóvember og desember til Marel og ELM Design.