Fundur um efnahagsmálin
Í lok janúar fundaði stór hópur LeiðtogaAuða í einstakri fundaraðstöðu í Bláa lóninu þar sem áherslan var á efnahagslífið. Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum flutti frábært erindi um stöðuna í efnahagsmálum og í framhaldi af því voru Jóhanna Waagfjörð framkvæmdastjóri fjármála hjá Högum, Hrund Rudólfsdóttir framkvæmdastjóri rekstrar og fjárfestingamála hjá Moderna og Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka með innlegg um hvernig er að standa í eldlínunni. Miklar umræður voru í kjölfarið. Framtíð Íslands var í brennidepli á síðari hluta fundarins. Unnið var með framtíðarsýn og gildi í vinnuhópum og tillögur gerðar um mikilvægustu aðgerðir. Niðurstöður hafa verið teknar saman og verða þær afhentar Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra.