Fimmtudaginn 5. mars, afhentu nokkrar stjórnarkonur LeiðtogaAuðar Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, kveðjur hópsins, hvatningu og gjöf í nafni LeiðtogaAuðar.
- Hvatningin var í formi 10 „varða“, sem eru afrakstur vinnu félagskvenna einn eftirmiðdag í Bláa Lóninu í janúar sl. Vörðurnar eru svör vinnuhópa um hvaða forgangsmál LeiðtogaAuður telur vera mest afgerandi fyrir nýja ríkisstjórn að koma í farveg sem allra fyrst.
- Kveðjan var í formi yfirlýsingar um að konurnar í LeiðtogaAuði gæfu kost á sér í mikilvæg verkefni framundan m.a. í formi nefndar- og stjórnarsetu, ráðgjöf og rýni, vinnuhópum ofl. og bæru ábyrgð á áframhaldandi farsæld þjóðarinnar.
Það var stoltur hópur LeiðtogaAuða sem átti góða stund með forsætisráðherra og komum við hér á framfæri hennar kveðjum og þakklæti.