Hrund fer til Marel

Ein af LeiðtogaAuðum, Hrund Rudolfsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri starfsþróunar hjá Marel Food Systems Corporate, sem er ný staða hjá fyrirtækinu, að því er fram kemur í tilkynningu þess.

Í henni segir:„Hrund hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra rekstrar- og fjárfestingarverkefna hjá Milestone / Moderna hf. síðan 2007. Þar áður var hún framkvæmdastjóri L&H eignarhaldsfélags, 2003-2007, og framkvæmdastjóri Lyf & heilsu hf., 2003-2006. Hrund mun hefja störf hjá fyrirtækinu í mars n.k.“