Stofnskjal

Samþykktir LeiðtogaAUÐAR
Með breytingum sem samþykktar voru á aðalfundi félagsins 8. maí 2008.

1. gr.
Félagið heitir LeiðtogaAuður.

2. gr.
Heimili félagsins er í Reykjavík.

3. gr.
Tilgangur félagsins er að efla tengslanet kvenna stjórnunar og áhrifastöðum í atvinnulífinu og að vinna því málefni framgöngu að auka þátttöku kvenna í atvinnulífi til áhrifa.

4. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið m.a. ná með námsstefnum og reglulegum fundum.

5. gr.
Halda skal félagaskrá yfir félagskonur. Hafi félagskona ekki greitt félagsgjald í eitt ár skal litið svo á að hún óski ekki lengur eftir aðild að félaginu og skal nafn hennar tekið út af félagaskrá.

6. gr.
Stjórn sér um inntöku nýrra félaga. Viðmið við inntöku skulu að jafnaði vera að viðkomandi gegni eða hafi gengt stjórnunar eða ábyrgðastöðu.

7. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 6 félagsmönnum, þ.e. formanni, varaformanni sem jafnframt er ritari, gjaldkera og 3 meðstjórnendum. Stjórnarkonur skulu kosnar til 3 ára í senn, tvær á hverjum aðalfundi sem haldinn skal fyrir lok maí ár hvert. Stjórn skiptir sjálf með sér verkum. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfundi eftir þörfum. Firmaritun félagsins er í höndum formanns og eins annars stjórnarmanns.

8. gr.
Starfstímabil félagsins er frá maí til maí ár hvert. Á aðalfundi félagsins skal stjórnin gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.

9. gr.
Árgjald félagsins er ákvarðar á aðalfundi ár hvert.

10. gr.
Rekstrarafgangi félagsins skal varið til uppbyggingar félagsins og til að standa straum af kostnaði af þeim ráðstefnum og fundum sem haldnir eru á vegum félagsins.

11. gr.
Ákvörðun um slit félagsins verður tekin á aðalfundi með einföldum meirihluta og rennur sjóðsafgangur ef einhver er til félags sem starfar að svipuðum markmiðum.

Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi félagsins 28. desember 2005 og öðlast gildi sama dag.
Breytingar voru gerðar á aðalfundi 10. maí 2007 og 8. maí 2008.