AMP nám í HR

Háskólinn í Reykjavík og IESE hefja í apríl samstarf um nám fyrir æðstu stjórnendur fyrirtækja. Námið kallast AMP (Advanced Management Program) og mun fara fram bæði í Reykjavík og í Barcelona.

Námið tekur hálft ár, kennt er í fjórum lotum – og fer síðasti fjórðungur námsins (vika) fram við IESE í Barcelona. Áherslur í náminu eru alþjóðlegar og koma kennarar að beggja vegna Atlantshafsins - flestir frá IESE en einnig frá London Business School, Richard Ivey School of Management og NASA.

Við kennslu er lögð áhersla á s.k. Case-aðferð. Til að kynna aðferðina og námið bjóðum við til kennslufundar (Case-fundar) þann 13. mars nk. kl. 12:10 – 13:00. Það er Eric Weber, aðstoðarskólastjóri IESE, sem mun sjá um stundina og boði verður upp á léttan hádegisverð. Þið sem hafið áhuga á að koma á fundinn eða fá frekari upplýsingar um námið endilega sendið mér póst eða skráið ykkur á amp@ru.is.

Þetta er frábært ,,prógram” – sem dæmi þá hefur einn af hverjum tíu yfirstjórnendum fyrirtækja á s.k. “Fortune 500” lista lokið AMP.

Námið kostar 1.9 millj. en það er verið að vinna í sérstökum afslætti fyrir LeiðtogaAuðar sem ég verð komin með eftir 10. mars n.k.