,,Játningar karlrembu"
Lars Einar Engström er sænskur sálfræðingur sem hefur starfað við stjórnendaráðgjöf hjá fjölda fyrirtækja í Evrópu. Bók hans "Játningar karlrembu" kom út hjá Leshús útgáfu í haust. Í bókinni lýsir Engström þeim viðhorfum sem valda því að konur, þrátt fyrir jafna menntun og reynslu, eru miklu síður ráðnar í æðri stöður. Bókin hefur vakið mikla athygli á Norðurlöndum, en þar eins og hér á landi, er það nýmæli að karl í valdastöðu vekji máls á þessu vandamáli. Flestir karlar sjá ennþá ekkert athugavert við ástandið eins og það er.
Í "Játningum karlrembu" er flett ofan af því hvað á sér stað í samræðum þeirra sem fjalla um starfsumsóknir og ráða í stöður. Skoðað er hvernig undirliggjandi fordómar hafa áhrif á hvaða umsækjandi er ráðinn. Rætur kynjamótunarinnar liggja djúpt og að mati Engströms er höfuðatriði að við gerum okkur grein fyrir því tröllataki sem gamlar hefðir hafa á viðhorfum okkar. Í bókinni gefur Engström auk þess ráð til fyrirtækja um aðgerðir sem muni stuðla að meiri jöfnuði og bendir meðal annars á það lykilatriði að fyrirtæki sem ætlar sér að þjónusta bæði kynin, ættu að sjá sér hag í því að fólk af báðum kynjum komi að stjórn mála hjá fyrirtækinu.
"Játningar karlrembu" er nauðsynleg lesning fyrir alla sem hafa mannaforráð ( ekki hvað síst þá sem velja í stjórnir) og er líka frábært rit fyrir konur á öllum aldri sem stefna að starfsframa.
Félögum "Leiðtoga Auðar" býðst bókin hér með á sérstöku tilboðsverði.
Tilboð:
1300 kr. hver bók og þá er sendingakostnaður innifalinn.
1100 kr. hver bók ef fleiri en 10 bækur eru keyptar í einu.
Sendið pöntun á leshus@leshus.is ásamt heimilisfangi og kennitölu reikningsgreiðanda. Eða hringið í síma 695 9525 og pantið gegn símgreiðslu. Takið fram í pöntuninni að um "Auðar- tilboð" sé að ræða.